Monday, November 3, 2008

What a crazy random happenstance!

Ég er umvafin hárgreiðslustofulykt. Er að gera ofnæmispróf sem felst í því að setja háralit á bak við eyrað á sér og bíða í 48 klst. Já, enn og aftur þarf ég að lita hárið á mér svart, kallar fram góðar minningar (JCS).  Það sem maður gerir ekki fyrir listina.

En þá er hrekkjavakan liðin. Það var óneitanlega afar krúttlegt að vaða upp í axlir af litlum krúttlegum vampírum og prinsessum, löggum og ofurhetjum, draugum og skrímslum. Trick or treat!

Helginni varði ég svo í að smíða og mála með nokkrum skólafélögum mínum (u.þ. b. 11.00 – 21.00). En Angela er að sýna útskriftarleikritið sitt í lok þessarar viku og við vorum að smíða svið. Leikritið heitir “Butterflies are free“ og auðnaðist mér sá heiður að vera stage manager í því (sýningarstjóri).  Ég geri samt ráð fyrir því að það sem ég sé að gera sé meira það sem sviðsmaður gerir.

Engu að síður nóg að gera þar til í næstu viku. Fiðrildin öll kvöld frá deginum í dag til og með sunnudegi. Tvö „myndaleikrit“ á fimmtudaginn og æfing fyrir þau daginn áður og samdægurs.
Svo er smá pása áður en Silence leikritið sem Unnar er að leikstýra byrjar og í pásunni kemur engin önnur er Hrefna í heimsókn til mín:D
Ætli þetta verði ekki afsökun mín til að fara í auga Lundúna og á einhvert tryllt óperuverk:D
Yay fyrir peningaeyðslu *horfir drungalegum augum á núðlubyrgðirnar sínar*.

Annars er http://newiceland.net/ klárlega besta síðan!

Já, klakinn er fjarlægur og dýr og hvílíkur dauði, ég var að kaupa mér flug til London fyrir 25.000… aðra leiðina… ég er svo mikill lúði að hafa ekki gert það fyrr. En hvað gerir maður ekki fyrir jól hjá fólkinu sem ég ann. Ég er farin að hlakka til þess að fá laufabrauð… í fyrsta sinn í 2 ár *snöktir af þrá*. Svo er ég að reyna að velja mér lag til að syngja á jólatónleikunum (það verða allir að vera með atriðiJ). Eina vandamálið mitt er að ég get bara valið lög með píanó eða gítarundirspil… sem útilokar… allan metal:O *angistarvein* neeeeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiii. Hvað á ég að syngja? Einhverjar villtar uppástungur? Ég og Aron erum að hugsa um að taka My eyes úr Dr. Horrible, en ef eitthvað tryllt kemur upp er það unaðslega vel þegið. (líka ef þið vitið um nóturnar við my eyes, hef leitað nokkra stund).

 

En jæja, ég er að hugsa um að emmbéellast ofurlítið áður en ég fer á æfingu.

Chao bonitas:)

Sesselía

Posted by Sezzý at 15:32:53
Comments

8 Responses to “What a crazy random happenstance!”

  1. Gauti says:

    Nú er ég kannski ekki frumlegur en er The Nightmare before Christmas ekki tilvalinn uppspretta hugmynda?? What’s this til dæmis :)

    Hvað er þetta Dr. Horrible dæmi samt? einföld google leit svalaði ekki forvitni minni…

  2. Anonymous says:

    Hæ sætasta Lundúnarmær… láttu engan segja þér annað.
    Er nú búin að hugsa til þín.. svona lítill íslenskur víkingur í London á þessum tímum… but jú vill spjara þig ekki satt…
    Núðlur eru góðar!!!
    Núðlur eru góðar!!!

    Farðu vel með þig og vertu með góða fólkinu í London.. ok?

    Bæjó, Sólveig,

  3. Anonymous says:

    Jú, Nightmare er alltaf málið:D
    Skoða það!

    Fann nóturnar btw:D
    Ef google virkar ekki virkar youtube, og ef youtube gerir ekkert fyrir þig er málið klárlega: http://www.drhorrible.com ;)

    Hahah, já, ég verð ekkert mikið fyrir aðkasti þar sem ég er aðallega í skólanum og fólkið þar er ágætt! hehe, eða unaðslegt eftir dögum;)
    En já, ég er ekki víkingur langt aftur í ættir fyrir ekki neitt. Að hafa ísinn í æðunum, eldinn í hjartanu og hafsjóinn og himingeiminn í augunum kemur manni í gegnum hvað sem er… jafnvel endalaust af núðlum.

    Kossar og bamsekram
    Sesselía;)

  4. Anonymous says:

    Hóbsavi lifir

  5. Anonymous says:

    HAHAHAHHAHAHAHHAHAHAHH
    VEL MÆLT,
    tek undir með síðasta ræðumanni!

    Sesselía

  6. Anonymous says:

    Er þetta ekki Dr. Horrible dæmið
    http://moseslei.net/drhorrible.html

    Bæði nótur og karaoke audio :)

    Kv
    ÓPR

  7. Anonymous says:

    Já, spurning um að fá sér nýtt blogg…

    Úff, ég er búin að reyna að blogga nokkrum sinnum en blog.com er svikull staður… *íhugar flutning en slær því á frest*
    Margt hefur gerst. Ég er nýkomin upp úr dýpstu lægð sem ég hef ráfað ofan í í nokkurn tíma. Eða svona, ég var ekkert þunglynd, en ég var klárlega ekki ég… og það er tímasóun…
    Síðasta vika var fyrsta vikan sem ég var tekin fyrir í vísindunum. Ég var látin mæta í pilsi í tvo tíma vegna þess að ég er svo oft í buxum (en ekki hvað, handahlaup og jóga allan daginn og svo á ég að eyða þessum örfáu mínútum sem ég fæ í frí á milli tíma til að skipta um föt *hneiksl*) En já, þetta átti víst að breyta hugsunarhætti mínum til hins betra, ég er nefninlega án efa með strákahugsun… eða þú veist, eitthvað. Ég get alveg lifað með pilsinu, en af þeim hlutum sem við eigum að gera er það klárlega ekki málið að fara í kalda sturtu kvelds og morgna. Ég reyndi það í þrjá daga og þessir þrír dagar voru upphaf lægðar minnar. Kaldir dagar urðu kaldari og skyndilega átti ég í erfiðleikum með að sofna á kvöldin (sökum frosinna táa) (kenningin segir að kalt bað eigi að hjálpa manni að sofna (kenning schmenning)).
    Kaldhæðnin mín á víst að vera vandamál líka (ekki séns að ég hætti því, klárlega besta form húmors er gefst! You can take my money, but you will never take my sarcasm…).
    Svo var ég að gera leiklistaræfingu fyrir framan bekkinn minn núna á þriðjudaginn og lenti í rosalega óþægilegum kringumstæðum. Þarna sem ég sit á miðju gólfi eftir að hafa gert æfinguna og er að hlusta af athygli á kennarann tala við mig… (eitthvað um að ég virðist sýna öllum að ég geti gert þetta meira en fullkomlega en segi svo bara fokk it og nenni því ekki lengur)… finn ég skyndilega þessa loftkenndu tilfinningu (lightheadedness), rosalega þægileg tilfinning, eins og maður getur ímyndað sér að fóstri líði, þyngdarlausu, fljótandi og með vegg á milli sín og heimsins. Að sjálfsögðu hlustaði ég á kennarann minn og lét á engu bera þótt herbergið sem ég sat í virtist skyndilega fjarlægt og óraunverulegt (vertigo). Ég hef fundið þessa tilfinningu nokkrum sinnum áður, en það sem ég hef hinsvegar ekki orðið vör við var það sem fylgdi í kjölfarið. Þar sem ég barðist við að halda athyglinni á kennaranum mínum og starði á hana var hún skyndilega það eina sem ég sá. Bara andlitið á henni, en restin var í móðu, ég vissi að fyrir framan mig voru um tuttugu aðrir nemendur, en ég sá bara í gegnum afmarkaðan hring (tunnelvision). Eins og gefur að skilja leið mér ekkert sérstaklega vel yfir þessu öllu og má segja að þarna hafi ég snert botninn á leiðindum mínum undanfarna viku.
    Já, þetta var hrotti.
    Í dag, föstudag voru svo prófin (það sem þeir kalla próf = sýningar á „leikstjórapörtum“).
    Það var nokkuð hressandi.

    Svo kom Hrefna í heimsókn til mín um daginn, það var afar flippað:D Nóg var gert, allt sem ég hafði í leti minni ekki skammast til að gera (túristast um London) var klárlega tekið með trukki og við sáum allt sem var vert að sjá (fyrir hóflegar fjárhæðir (slepptum auga Lundúna eftir nokkra umhugsun, það er ekki kúl hvað það er dýrt)).

    Yay, loks er upp runnin árstíðin þar sem ég fæ að syngja jólalög óáreitt, white christmas, snjókorn falla, all I want for christmas osfrv. allt þetta og miklu meira til fyllir hjarta mitt af einlægri heimþrá og söknuði. Ég hlakka svo til jólanna. Ég get ekki beðið eftir því að sjá alla sem ég ann ó svo heitt *fer í dramatískar stellingar og þylur harmaljóð*.
    Svo er jólakabarettinn næstu helgi… kannski maður ætti að fara að æfa lag, ég og Zoe erum að hugsa um að taka come what may og ég og Maja erum að hugsa um að taka True love‘s kiss (bara upp á hið einlæga flipp). Svo munum við syngja Razzle dazzle úr Chicago og dansa trylltan dans við, á undirfötum einum klæða og Aron og Villi (eða Fredrik hinn þýski) munu kasta mér upp í loft. Svo munum við einnig syngja Stepping out with my baby og steppa við það, veit reyndar ekki hvort það verður á kabarettnum eða í dansmatinu, já, næsta vika fer sem sé í margskonar mat í tímum. Við dönsum t.d. við What‘s the buzz úr JCS… *nods approvingly* gott stöff!
    OMG á morgun er ég í fríi… OG HINN…:D JOYFUL ,JOYFUL LORD WE ADORE THEE… átti ekki helgarfrí síðustu helgi vegna æfinga og skólaþrifa… illmennska þetta er!
    Já, á morgun verða verslaðar jólagjafir í tilefni krónustyrkingar. Pundið lækkaði um fjörutíukall eða svo… nice!
    Lifi efnahyggjuhátið hins vestræna heims… þeir elska þig mest sem gefa þér stærstu pakkana… úff, mig langar ekki í jólagjafir. Því það er ekkert sem mig langar í nema nærvera minna nánustu. Það eina sem ég þarf er faðmlag eða koss. Manni getur verið kalt með hlutum en minningar sem maður deilir með öðrum geta yljað manni ár eftir ár.
    En jæja, hinn svarti skuggi svefnsins syngur seiðandi söngva og ég get ekki varist aðdráttarafli hans lengur. Ég reyni ekki lengur að bæla niður tilfinningar mínar til hans af ótta við að hann elski mig ekki til baka. Ég veit að þráin er þarna, þessi löngun í fullkomið öryggi í óvissunni.
    Ég er farin á vit töfranna.
    Ég bið ykkur vel að lifa.
    Sesselía

  8. drivers says:

    This is really a nice blog,i always come here and read the articles

Leave a Reply