Monday, November 3, 2008

Fimmtudagur 30asti okt

Jæja krakkar, í dag er bloggtími:D

Ég er með öðrum orðum enn á lífi, hlusta á argentískan tangó og soundtrackið úr dr. Horrible‘s sing-along blog. Allir sem eru í meðallagi flippaðir og elska Joss Whedon, söng og almennan kjánaskap verða að sjá þetta!

Dagurinn í dag var æði, það er svo geggjað að reyna á sig þar til maður veit ekki hvernig heimurinn snýr af líkamlegri hamingju. Hann byrjaði á jóga og svo komu sviðsbardagalistirnar og skylmingarnar, þá fimleikar og síðasti tíminn okkar var ballett:D Alger snilld.

Það eina sem er ekki snilld er að ég virðist haldin þeirri ranghugmynd að ég verði að bæta upp fyrir þetta heilsusamlega líferni með því að éta möffins og súkkulaðikexkökur í einveru minni… ég vil meina að það sé mikill misskilningur af minni hálfu, en svo nálgast höndin skyndilega, full af möffins og ég neyðist til þess að snæða þetta, það sem maður leggur ekki á sig… (ég veit ekki heldur hvað ég meina svo þið verðið bara að “go limp“ eins og sagt er (mjög vinsælt hugtak í skólanum (means to let it go, gleyma þessu) (vá, ég elska sviga innan í svigum (jess, náði fimm, score!)))).

 

 Þá er Hrekkjavakan rétt handan við hornið og flestir bekkjarfélaga minna fóru í Halloweenpartí  áðan, en ég ákvað að eyða mínum tíma í að skríða um gólf búningsherbergisins/leikmunaherbergisins í leit að kjólnum sem ég þarf að nota á æfingu í kvöld. Það fór þó ekki betur en svo að kjóllinn sá arna virðist vera horfinn af yfirborði jarðar svo ég neyðist til að leika nakin! Ohhhhh, leiðinlegt…

En ætli ég ætti ekki að fara að taka mig til fyrir dansinn.

Lífið er argentískur tangó og dramatík.

 

Ástarkveðjur

Sesselía

Posted by Sezzý at 15:28:08
Comments

One Response to “Fimmtudagur 30asti okt”

  1. download says:

    You did it! …How did you do it?

Leave a Reply