What a crazy random happenstance!
Ég er umvafin hárgreiðslustofulykt. Er að gera ofnæmispróf sem felst í því að setja háralit á bak við eyrað á sér og bíða í 48 klst. Já, enn og aftur þarf ég að lita hárið á mér svart, kallar fram góðar minningar (JCS). Það sem maður gerir ekki fyrir listina.
En þá er hrekkjavakan liðin. Það var óneitanlega afar krúttlegt að vaða upp í axlir af litlum krúttlegum vampírum og prinsessum, löggum og ofurhetjum, draugum og skrímslum. Trick or treat!
Helginni varði ég svo í að smíða og mála með nokkrum skólafélögum mínum (u.þ. b. 11.00 – 21.00). En Angela er að sýna útskriftarleikritið sitt í lok þessarar viku og við vorum að smíða svið. Leikritið heitir “Butterflies are free“ og auðnaðist mér sá heiður að vera stage manager í því (sýningarstjóri). Ég geri samt ráð fyrir því að það sem ég sé að gera sé meira það sem sviðsmaður gerir.
Engu að síður nóg að gera þar til í næstu viku. Fiðrildin öll kvöld frá deginum í dag til og með sunnudegi. Tvö „myndaleikrit“ á fimmtudaginn og æfing fyrir þau daginn áður og samdægurs.
Svo er smá pása áður en Silence leikritið sem Unnar er að leikstýra byrjar og í pásunni kemur engin önnur er Hrefna í heimsókn til mín:D
Ætli þetta verði ekki afsökun mín til að fara í auga Lundúna og á einhvert tryllt óperuverk:D
Yay fyrir peningaeyðslu *horfir drungalegum augum á núðlubyrgðirnar sínar*.
Annars er http://newiceland.net/ klárlega besta síðan!
Já, klakinn er fjarlægur og dýr og hvílíkur dauði, ég var að kaupa mér flug til London fyrir 25.000… aðra leiðina… ég er svo mikill lúði að hafa ekki gert það fyrr. En hvað gerir maður ekki fyrir jól hjá fólkinu sem ég ann. Ég er farin að hlakka til þess að fá laufabrauð… í fyrsta sinn í 2 ár *snöktir af þrá*. Svo er ég að reyna að velja mér lag til að syngja á jólatónleikunum (það verða allir að vera með atriðiJ). Eina vandamálið mitt er að ég get bara valið lög með píanó eða gítarundirspil… sem útilokar… allan metal:O *angistarvein* neeeeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiii. Hvað á ég að syngja? Einhverjar villtar uppástungur? Ég og Aron erum að hugsa um að taka My eyes úr Dr. Horrible, en ef eitthvað tryllt kemur upp er það unaðslega vel þegið. (líka ef þið vitið um nóturnar við my eyes, hef leitað nokkra stund).
En jæja, ég er að hugsa um að emmbéellast ofurlítið áður en ég fer á æfingu.
Chao bonitas:)
Sesselía