Happiness is…
Já, eins og segir í bítlalaginu er hamingjan hlý byssa.
Ég er búin að komast að því undanfarna viku að hamingja getur verið ýmislegt…
“Happiness is suffering” er setning sem situr mjög í mér…
En annars þykir mér það ansi ótrúlegt að aðeins vika sé liðin af skólanum, mér finnst ég hafa verið hér miklu lengur en raunin er og við krakkarnir höfum á ótrúlega stuttum tíma kynnst afar mikið.
Í vikunni erum við búin að dansa stepp, jazz og sögulegan dans ásamt því að fara í líkamlegt leikhús, sirkús, fimleika, sviðsbardaga og söng!
Við erum með marbletti víðs vegar um líkamann, strengi á flestum stöðum og farin að ræða saman á tungumáli sem er flestum illskiljanlegt, ekki aðeins vegna þess að það er íslenska, enska og sænska til skiptis heldur sökum þess að efnistökin eru eilítið frábrugðin því sem gengur og gerist.
Því erum við mestmegnis farin að tala um greiningarsveppi, complexa, mindquakes (hugarskjálfta), shameevents (skammaratvik), awareness (meðvitund), sýnilegar og ósýnilegar hugsanir, marssúkkulaðistykki og samninga (og þá sérstaklega samningsrof) hins daglega lífs.
Við erum sem sé rétt tæpar þrjár klukkustundir á dag í tímum sem heita vísindi þess að leika og þar er rætt fram og aftur um ýmsa hluti tengda efninu. Því verður ekki neitað að stundum laumast skemmtilegar athugasemdir inn í umræðuna og erum ég og nokkrir aðrir búin að engjast um af hlátri yfir ýmsu… þar má sem dæmi nefna skóblæti Johannesar hins sænska og athugasemdir Frederiks hins þýska varðandi óþekkar tíkur…(naughty bitches).
Þetta er klárlega dálítið öðruvísi… á laugardaginn keypti ég mér steppskó og í gær sá ég John Cleeseá förnum vegi! (mittens) Í síðustu viku bauð ég líka náunga sem var að bauka eitthvað í garðinum sínum góðan daginn, til þess eins að uppgötva þegar hann svaraði að þetta er gaurinn sem var á Fat Fighters fundunum í Little Britain! Þess má einnig geta að það eru íkornar víðs vegar hérna:D
Já, lífið er skondið og ljúft í senn og mér líður óneitanlega undursamlega með þá staðreynd að vera komin með heimili.
Löng saga stutt: Ég lifi í gleði.
Ást til allra!
Sesselía
hahaha já lífið er skemmtilegt, greinilega alveg sérstaklega í Bretlandi! ;o) Þú verður að lofa mér að ef þú sért John Cleese aftur þá verðuru að öskra “mittens” á eftir honum!!! Miss you love…
OMG! Eg elska ikorna, thad er svo mikid af theim herna, eg er alveg ad farast ur kruttleika. Og John Cleese! Hvilik snilld er thad, eg er buin ad hitta fullt af yoga celebrities :p
Mig langar i mars…
Love love
SBen
þú hefðir frekar átt að segja Kapa fling fling…:P heheh mér allavega finnst það best úr þessum auglýsingum…
Anna Hjörleifs