Monday, September 29, 2008

Happiness is…

Já, eins og segir í bítlalaginu er hamingjan hlý byssa.

Ég er búin að komast að því undanfarna viku að hamingja getur verið ýmislegt…

“Happiness is suffering” er setning sem situr mjög í mér…

 

En annars þykir mér það ansi ótrúlegt að aðeins vika sé liðin af skólanum, mér finnst ég hafa verið hér miklu lengur en raunin er og við krakkarnir höfum á ótrúlega stuttum tíma kynnst afar mikið.

 

Í vikunni erum við búin að dansa stepp, jazz og sögulegan dans ásamt því að fara í líkamlegt leikhús, sirkús, fimleika, sviðsbardaga og söng!

Við erum með marbletti víðs vegar um líkamann, strengi á flestum stöðum og farin að ræða saman á tungumáli sem er flestum illskiljanlegt, ekki aðeins vegna þess að það er íslenska, enska og sænska til skiptis heldur sökum þess að efnistökin eru eilítið frábrugðin því sem gengur og gerist.

Því erum við mestmegnis farin að tala um greiningarsveppi, complexa, mindquakes (hugarskjálfta), shameevents (skammaratvik),  awareness (meðvitund), sýnilegar og ósýnilegar hugsanir, marssúkkulaðistykki og samninga (og þá sérstaklega samningsrof) hins daglega lífs.

Við erum sem sé rétt tæpar þrjár klukkustundir á dag í tímum sem heita vísindi þess að leika og þar er rætt fram og aftur um ýmsa hluti tengda efninu. Því verður ekki neitað að stundum laumast skemmtilegar athugasemdir inn í umræðuna og erum ég og nokkrir aðrir búin að engjast um af hlátri yfir ýmsu… þar má sem dæmi nefna skóblæti Johannesar hins sænska og  athugasemdir Frederiks hins þýska varðandi óþekkar tíkur…(naughty bitches).

 

Þetta er klárlega dálítið öðruvísi… á laugardaginn keypti ég mér steppskó og í gær sá ég John Cleeseá förnum vegi! (mittens) Í síðustu viku bauð ég líka náunga sem var að bauka eitthvað í garðinum sínum góðan daginn, til þess eins að uppgötva þegar hann svaraði að þetta er gaurinn sem var á Fat Fighters fundunum í Little Britain! Þess má einnig geta að það eru íkornar víðs vegar hérna:D

Já, lífið er skondið og ljúft í senn og mér líður óneitanlega undursamlega með þá staðreynd að vera komin með heimili.

 

Löng saga stutt: Ég lifi í gleði.

Ást til allra!

Sesselía

Posted by Sezzý at 18:55:02 | Permalink | Comments (3)

Monday, September 22, 2008

Fyrsti skoladagurinn

Gledi, gledi, gledi og ast!
Ja, thakka ther fyrir thad Jenny:) Eg er sem se komin med ibud i mjog akjosanlegri nalaegd vid skolann og thar mun eg eyda i thad minnsta naestu 6 manudum!
Leigan thar er 85 pund a viku eda 368 pund a manudi og thegar thetta er skrifad eru thad… um 61000 kjell a manudi! Eg er med odrum ordum mjog heppin tvi tetta er eins odyrt og thad gerist a thessu svaedi. Hvad med thad tho tad se enginn kraftur a vatninu og engin internettenging, klarlega aukaatridi:) Tad er allt morandi i internetkaffihusum sem thyggja med glodu gedi alla smaaura sem eg a!

I odrum frettum er ad eg fann frabaert band a Gumtree.com sem heitir Lights. Nyja uppahaldid mitt nuna(“,) www.myspace.com/lightsmu fyrir tha sem hafa ahuga.

En ja, like omg lol… fyrsti skoladagurinn var i dag og eg er ekki fra thvi ad eg se bara overjoyed med thetta allt saman. Bara tom gledi og hressleiki. Vid erum sem se 17 i bekk (nema mer skjoplist, en thad gerist alltaf annad slagid) og mestmegnis Sviar. 5 Islendingar, 1skosk, 1thyskur, 1londonsk og restin Sviar held eg… En thad sem er skemmtilegt vid thetta allt er ad samtals a 3ja og 4da ari eru thau 8 ad eg held! Sem er jah, merki um gridarlega aukningu og vidbaetur, enda skolinn kominn i nytt afar vidkunnanlegt husnaedi sem er verid ad klara bara naestu daga!

Svo er alveg edalhressandi ad byrja daginn a yoga og hugleida sig alveg i rusl i lokin:)
En ja, meira um yoga og hugleidslur vid taekifaeri… thegar timinn minn er ekki ad renna ut… fasistar;P!
(fer og flytur allt sitt hafurtask af hostelinu og yfir i nyju ibudina)

Kind regards,
Sesselia

Posted by Sezzý at 20:49:34 | Permalink | Comments (2)

Friday, September 19, 2008

Husnaedisleitin mikla

Jaeja, minn annar morgunn her i Lundunum er upp runninn.
Thratt fyrir sveitt internetkaffi er lifid yndislegt og vedrid herna er ljuft. Thetta er vist ad sogn Bretanna eina sumarid sem their eru bunir ad fa sokum rigninga:p leidinlegt!
En ja, i gaer vakti eg samskolung minn hana Jenny fyrir allar aldir og vid snaeddum brunch i mesta systerni. Svo rafudum vid stefnulaust um Camden town i dalitla stund og eg keypti mer nedangreint simanumer og converter fyrir rafmagnsinnstungur… Dalitid sem er algerlega bradnaudsynlegt ad hafa!
Hrottafengnu innstungur!

Upp ur hadegi kom svo Aron og vid thrju forum upp ad skola ad skoda umhverfid i kringum Archway og Holloway road. Thar hittum vid Villa og sidar Halla. Komumst vid tha ad theirri skemmtilegu stadreynd ad vid fimm erum faedd a arunum: 1983, 1984, 1985, 1987 og 1989.
Thad eru jafnmorg ar a milli Villa og Arons og min og Nonna brodur:)
En hvad um thad, vid forum saman ad leita ad skolanum svo vid thyrftum ekki ad gera thad fyrsta daginn! Tad sem er skemmtilegt vid thad allt er sem se ad vid erum i nyju husnaedi i ar og thad er enn oklarad! Eitthvad virdist hafa dregist med skilin a husnaedinu og sagdi skolastjorinn okkur ad thau hefdu att ad fa thad fullklarad fyrir manudi! En sem stendur er allt a fullu og hann byst vid ad 80% verdi tilbuin a manudaginn:D

Eftir ad hafa sed hvernig loftbitarnir a efstu haed skolans lita ut utan fra sed heldum vid afram for okkar sem vard fljotlega ad herbergjamatun Arons:) Hann matadi eitt fyrir 110 og aetladi svo ad mata annad i adeins steinkastsfjarlaegd fra skolanum, en thad var ta buid ad finna leigjanda. Hann er tvi enn husnaedislaus (nema hann stokkvi a 110, svo sem ekki slaemur dill), sem og Halli og eg. Villi baettist i hop Jennyar med tvi ad finna ser herbergi i gaer.

Ta forum vid a dasamlega homey veitingastad/sjoppu/kaffihus…eitthvad!
Thar var afgreidslumadurinn ad snaeda a naesta bordi vid okkur og hann var svona lika skemmtilegur naungi ad vid akvadum ad gefa honum vidurnefnid Stebbi fraendi. Hetum vid thvi ad koma thangad idulega i tilefni thess ad skolinn okkar er i naestu gotu.

Haegt og rolega er thad ad renna upp fyrir okkur ollum ad vid erum ad fara ad bua i London naestu misserin. Hressandi thad. En eins og Pumba segir; Thar sem rassinn hvilir, thar er heimilid. Tho eg storefist um ad nokkur rass muni hvilast nokkud herna, ekki midad vid hina trylltu stundaskra sem vid fengum um daginn:)

En ja, ef Aron eda Halli les thetta fann eg thessa lika fantabulous sidu fyrir husnaedisleitara, en hun er: www.spareroom.co.uk. Mikil gledi i gangi thar, enda eina sidan sem eg hef fundid fyrir utan Gumtree thar sem haegt er ad leita eftir korti:D

Jaeja, aetli madur fari ekki ad gera eitthvad heimskulegt eins og ad hanga a facebook fyrir sidustu minuturnar sinar!

Thar til naest elskurnar:)

Sesselia:)

Posted by Sezzý at 11:02:42 | Permalink | Comments (2)

Thursday, September 18, 2008

Internet

Jaeja, 07531938736 er hid nyja numer.
Eg lifi a hosteli sem lofadi mer interneti en hefur tad svo ekki tegar til kastanna kom… tvi sit eg her a afar illa lyktandi internetkaffi og leita ad herbergjum a gumtree:)
Oh joy…
*heldur afram ad leita*

Chao!

Posted by Sezzý at 19:54:00 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, September 17, 2008

Lundúnir

Jæja, nú verður ekki aftur snúið!
Ég sit á Keflavíkurflugvelli og bíð eftir að flugvélin mín fari!
Ég er að fara til Lundúna:)
Fátt um það að segja nema… yay!
Já, og btw, jörðin sogaðist ekki ofan í svarthol, sem kom mér svo sem ekkert sérstaklega á óvart, þar sem þeir eru ekki enn búnir að skapa áreksturinn einu sinni… eitthvað öfugt upplýsingaflæði í gangi, en maður getur ekki annað en verið ánægður með það:)
En það er ekkert nema stanslaus gleði hérna megin við lyklaborðið;)
Ég bið ykkur vel að lifa:*

Sesselía kveður að sinni

Posted by Sezzý at 15:52:48 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, September 10, 2008

Heimsendir

Tíundi september tvöþúsundogátta.
Ekki aðeins alþjóðlegi faðmlagadagurinn, heldur lika dagur hugsanlegra endaloka jarðarinnar.
Jæja, nú er heimsendi spáð klukkan ellefu í fyrramálið. (heimsendir lesist sem jarðarendir)

Ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur, en þetta er vert vangaveltna.
Ef jörðin ferst ekki mun dagurinn á morgun líða að kveldi og sólin rísa á ný eins og hún hefur gert frá örófi alda. Bárurnar munu áfram kyssa strendur landanna og lífið mun ganga sinn vanagang. Enn ein heimsendaspáin gleymist og fer í sama bunka og heimsendir2000 spáin.

Ef jörðin hins vegar ferst þá mun ég ekki geta haft miklar áhyggjur af því, því tíminn til að bíða eftir dauðanum verður líklega enginn og þótt ég hefði tíma til að hlusta á dauðann nálgast myndi ég ekki eyða þeim í áhyggjur, kvíða eða eftirsjá. Það sýnir sig hvað eftir annað að þrátt fyrir allt gerir fólk sér grein fyrir því á ögurstundu hvað er mikilvægt og hvað ekki.
Þegar fólk stendur frammi fyrir dauðanum fara flestir að sjá hlutina í réttu ljósi. Átakamál hversdagsins virðast kjánaleg og maður sér heildarmyndina, það sem raunverulega skiptir máli.
Fólk segir oft: ,,Lifðu lífinu eins og hver dagur sé þinn síðasti”, en ég held að fólk skilji orðin ekki fyrr en þau standa frammi fyrir því að hugsanlega sé sá dagur runninn upp.
Þetta er ekki mitt tækifæri til að skrifa epíska (ljóðsögulega) kveðjuræðu, því ef allt fer eins og hinir svartsýnustu hafa spáð mun enginn lesa þessi orð áður en það gerist.

Það er samt stundum gott að setjast niður og hugsa um það sem maður er þakklátur fyrir. Ég er til dæmis þakklát fyrir vinina, fjölskylduna, listina, skuggana, litina, sólina, lífið, dýrin, náttúruna, lítil bros, glampa í augum, snjó, lykt af nýslegnu grasi, lolketti, ljóð, brandara, læki, hlátur, málverk, regn, söng, skýjamyndir, tónverk, kitling, ástúð, tilfinningar, internetið, hatta, kúr (cuddle), fjölbreytileika, kyrrð, fjöll, kossa, sjóinn, gsm síma, hvassviðri, skóga, tungumál, myrkur, fossa, heimili, faðmlög og alla litlu hlutina sem koma manni til að brosa.

Ég læt fylgja með eitt prósaljóð í lokin.
(Dearest William, if the world does not come to an end and you happen to read these words I humbly bid you please to avert your eyes)

Við göngum hlæjandi út í bláinn

og þurfum engar vegastikur eða vörður.

Við höfum hjörtu og paradís er alls staðar.

Hér er biti af himninum,

látum hann leika á milli fingra okkar.

Setjumst um stund á þúfurnar

og brosum með fuglunum.

Sjáðu vorið í augum okkar,

langar þig ekki að koma með?

Við eigum ekki neitt,

en fáum lífið að láni.

Ég veit ekki hvað ég endist lengi enn,

en mér er sama                                           

því við erum marglitar sápukúlur .

Það skiptir ekki máli hvar við endum

því lífið er svo gott

núna.

Komdu með.

Ekki vera hrygg ef einhver yfirgefur okkur,

gleðjumst heldur 

yfir tímanum sem við áttum saman.

Sólargeislarnir draga mig áfram

en skuggarnir hvísla að ég deyi á morgun.

Ég brosi og hlæ og kyssi þá sem ég sé

því tíminn er lengri en ég hélt.

Hvert augnablik er gjöf.

Jæja, ætli maður fari ekki að sofa svefni hinna réttlátu, ég held að Rósa, herbergisflugan mín, fari fljótlega að þreytast á því að eltast við ljósið frá tölvuskjánum.
Ég elska ykkur öll, þau ykkar sem ég hef kynnst og þau sem ég hef ekki enn náð að kynnast!
Í lokin er svo myndbandið

http://www.youtube.com/watch?v=V5BxymuiAxQ

því það segir allt sem segja þarf:)

Kv. Sesselía

Posted by Sezzý at 02:27:07 | Permalink | No Comments »