Bara ágætt þakka þér!
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að þjónar skori áreiðanlega nokkuð hátt á lista heimsins yfir dramatískustu þjóðflokkanna. Það gæti verið að það sé út af skítnum sem þeir verða að taka frá sumum viðkunnalegustu viðskiptavinunum, en það er sem betur fer undantekningin!:)
Annars er lífið bara eins og veðrið, síbreytilegt og óáreiðanlegt en langoftast gott fyrir einhvern.
Ég kláraði hér um daginn frábæra seríu sem heitir Reaper, mæli klárlega með henni:D
Hún fjallar sem sagt um Sam sem á 21árs afmælinu sínu kemst að því að foreldrar hans seldu sál hans djöflinum áður en hann fæddist. Nú er hann tilneyddur til þess að starfa fyrir djöfulinn við það að vera “reaper”(maðurinn með ljáinn!) og senda strokusálir aftur til helvítis!
Hljómar án efa eins steikt og það er, isn’t it great!*beam*:D
Um helgina er ég að fara í útilegu í fyrsta skipti síðan fyrir… mörgum árum! Ég hlakka mikið til og vona að veðrið verði frábært:D Svo er bara allt að gerast á næstunni!
Helgina eftir útileguna er Versló og þá reikna ég með því að vera að vinna föstudag og laugardag, en á sunnudagskvöldi verður slatta af Akureyringum (þar á meðal mér) hrúgað í rútu og við keyrð suður á bóginn, en við munum svo fljúga til Svíþjóðar næsta dag á vinabæjamót norðurlandanna! Ég held að það verði frábært, þó fögnuðurinn verði sorgarblandinn, þar sem hvorki Vala né sjálf Sally Johnson sáu sér fært að heiðra okkur með nærveru sinni í ár.
Þó er öll sorgin ekki upptalin þar sem fararstjórarnir fræknu, þeir Jói og Haukur verða á DjangoJazz Festival á Akureyri í þeirri viku.
En við vonum að þeir skemmti sér vel þar, sem og Vala, Eyþór og Sally Johnson:)
Eftir Svíþjóðarförina mun ég vera róleg á Akureyri í fjóra daga eða svo, en þá mun ég ég hverfa á ný til Reykjavíkur að sjá ástkæra Ástuna mína í síðasta sinn fyrir útförina! *fliss*
En hún er að fara sem skiptinemi til Belgíu í ár og fer út um 20. ágúst næstkomandi *nötrar af ekka*.
Ég fer til Reykjavíkur þann 14. ágúst og reikna með að koma aftur þann 18. svo ef ykkur vantar far endilega hafið samband! Annars er ég byrjuð að nota þetta samferda.net og þetta er alger snilld:)
Jæja, ætli maður verði ekki að fara að reyna að koma sér á fund eða eitthvað, ég er svo upptekin manneskja…
Mikil ást,
Sesselía;)