Nei, sæl á ný
Það er helst í fréttum að eftir vinnu í gærkveldi fór ég á svaðalegt djamm með Kötu. Það byrjaði að sjálfsögðu á Brynjuís og steik með fólki sem við þekktum mismikið fyrir utan. Svo var haldið yfir í Vaðlaheiðina að blása sápukúlur. Þar næst fórum ég og Kata í Oddeyrarskóla að róla okkur, klifra, vega og almennt að hanga. Þá fór Kata að örvænta sökum þess að vinnudagur hennar átti að byrja snemma daginn eftir svo að sjálfsögðu skutlaði ég henni heim… en við vorum ekki fyrr búnar að leggja bílnum fyrir utan húsið hennar en Villi hringdi í mig og tilkynnti mér um þetta svæsna froðupartý í Hafnarstrætinu.
Við að sjálfsögðu rukum þangað og rúlluðum okkur í tryllingslegri froðu sem einhverjir villtir spellvirkjar höfðu framkallað í vatnsfossunum fyrir neðan Sigurhæðir með hjálp nokkurra uppþvottarlagarbrúsa! Löggið var þegar komið á staðinn og sprengdi nokkrar bubblur(!)en settist að því loknu ráðþrota inn í bílinn sinn og beið eftir slökkviliðinu. Slökkviliðsbíllinn kom æðandi og skakkaði leikinn og er það sagt að þvílíkt og annað eins froðupartý hafi aldrei verið haldið á landi elds og ísa, nema ef ske kynni þarna um árið þegar heilu vörubílsförmunum af sápu var mokað ofan í Geysi karlinn, en það er önnur og miklu leiðinlegri saga.
Þetta virðist ætla að vera árlegt hjá fólki á Akureyri að taka sig til og froða heilu göturnar með aðstoð gosbrunna og fossa.
Lifi frumleikinn
Sezzý;)