Friday, May 23, 2008

Gleði

Dásemd, dásemd.
Meiri gleði, meiri hamingja.
Það er skemmst frá því að segja að þegar ég fór til Reykjavíkur hérna um daginn fór ég í inntökupróf í ASAD, sem er leiklistarskóli í London. Núna er ég komin inn og hlakka ærið til þess að vera fátækur námsmaður í London;D.

Við komumst líka áfram í aðalkeppni Eurovision nú í kvöld.

Í öðrum góðum fregnum er það helst að lífið brosir við hverju þeim sem valhoppar út í sólina þessa snemmsumarsmorgna sem nú gægjast inn á milli syfjaðra gluggatjaldanna. Lífið er fallegt og fegurðin er ávallt í augum sjáendanna. Leyfið sumrinu að staldra við í hjörtum ykkar:D. Ég neita að missa af sumrinu enn eitt árið.
… hún hefur sagt mér að vaka og vinna, vonglaður taka nú sumrinu mót…

Ahhh, ég er svo hamingjusöm að ég hugsa að ég fari að sofa fljótlega, eða allavega keyra áleiðis heim;D

Kær kveðja

Sesselía

Posted by Sezzý at 01:46:09 | Permalink | No Comments »