Úff, ég fór inn á kaupthing.is rétt í þessu og það eina sem ég gat stunið upp var… f*** me gently in the bum (en það er nokkuð sem hin skoska vinkona mín Zoe á til að segja (sem er mjög skondið því hún er svo lítil og krúttleg að það er fullkomið stílbrot að heyra hana segja þetta).
Ég sé það núna að ég hefði á sínum tíma átt að taka alla peningana mína og breyta þeim í pund… En eins og maðurinn sagði er auðvelt að vera vitur eftir á. Ég hefði átt að vinna meira í sumar… en þá hefði ég þurft að sleppa því að sofa og það hefði hvort eð er komið niður í sama stað. Krónuormurinn virðist ekki ætla að rétta úr sér.
Leigan mín er komin upp í 82.000 á mánuði… úr 57.000… Já, það sýgur, ansi mikið…
En í öðrum mikilvægum fréttum er það helst að ég (like totally omg) var úti að versla í Sainsburys í dag og fann kit kat… sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þetta var APPELSÍNUKITKAT! *springur af kæti*
Hvað sem allri kreppu varðar keypti ég mér helling af því… svo mikið að ég er dofin í tungunni núna… og full af súkkulaði:D *hleypur í hringi og hangir í loftinu af einskærri hamingju*
Appelsínukitkött á dag koma heiminum í lag, gefið bönkunum kit kat, þeir lagast örugglega.
Ég var að hugsa eitthvað á þessum nótum um daginn: Úff, en dæmigert að það komi kreppa núna þegar ég er í London að reyna að draga fram lífið á lánum og núðlum…
En svo uppgötvaði ég að þetta er í rauninni einkar hentugt, því í rauninni er ég ein af þeim sem er undir það búin að sjá peningana sína verða að engu. I signed up for it!
O, sei, sei, já, en skemmtilegt!
Það er líka hægt að gera svo margt, maður getur tekið upp það sem dönsku kaupmennirnir gerðu í den og blanda músaskít við núðlurnar sínar til að drýgja þetta:D
Annars er bara unaðslegt að frétta héðan myndi ég halda. Við steppum, dönsum, hoppum og syngjum og blöndum þess á milli geði og rannsökum meðvitundir hvers annars í þar til gerðum krufningartímum.
Á morgun erum við svo að fara á sýninguna Ghost með skólanum, það er víst helmingsafsláttur þar sem leikstjórinn nam við ASAD, heppin við!
Sem minnir mig á þá vitfirru að Aron, Haraldur, Villi og ég fórum saman á Spamalot nú um helgina og skemmtum okkur um efni fram (25pund á kvikindi).
Ég var byrjuð að hugsa um jólagjafir og ég held að ég hafi komist að hinni fullkomnu niðurstöðu… allir fá núðlur og íkorna frá mér í jólagjöf. Núðlur er það eina sem ég hef efni á og ég get tínt íkorna úr bakgarðinum mínum… maður veður upp í augu af þessu:D
Úff, sem minnir mig á þá leiðingjörnu staðreynd að ég á eftir að kaupa mér flug til London… það er ansi slæmt… í ljósi þess að það verður dýrara og dýrara með hverri mínútu sem líður… kannski get ég hoppað! Eða teikað flugvélina… eða synt… eða ræktað á mig vængi… eða… fokk, I‘m doomed… Hvernig er það annars með skip? Er hægt að fara til Bretlands með skipi? Bara svona pæling þar sem það var aðalferðamátinn í denn. Eða var því algerlega skipt út fyrir vængina? Það hlýtur að vera mikið ódýrara ef það er enn gert. Gæti jafnvel hengt mig aftan í á dekkjaslöngu og flotið memm… verst að það er dálítill spölur frá London að næstu höfn… eða hvað? Ég bara spyr, ég hef ekki hugmynd.
Hahahah, en já, í dag fengum við fyrstu leikæfinguna! En hún gengur út á inanimate objects (dauða hluti) og hver og einn fékk hlut sem hann á að leika eftir þrjár vikur, þangað til eigum við að hugsa þær hugsanir sem fara í gegnum þennan tiltekna hlut og hvernig umhverfið er osfrv.
Ég er sem sé gluggi!
Hahahah, ég og Nonni bróðir höfum mikla reynslu af þessu:D Við eyddum góðri stund í þetta hérna um árið, og ég skemmti mér ávallt mikið þegar ég skoða myndirnar af okkur gera okkar besta til að leika meðal annars ljósastaur, gaffal, íste, kertastjaka, kommóðu, pensil, rassgat, rúm, snjókomu, spegil, stein, stafsetningavillu, sög, risaeðluhægðir og glugga! Good times, good times:D
*gefur Nonna high 5*
Læt fylgja með myndir sem sýna snilld okkar (vona að þær sjáist).


Það sér það náttúrulega hver maður að þarna erum við af einskærum hæfileikum að setja okkur í hlutverk ljósastaurs og ístes… Galna lið:D Gotta love it!
En jæja, það er kominn Íslendingur í heimsókn að angra mig, bið ykkur vel að lifa óhræsin ykkar;D
Sesselía